Grunnskólakennarar eiga ekki rétt á greiðslum fyrir aðstoð sem þeim var gert að veita við smitrakningu, vegna Covid-19 faraldursins. Félagsdómur birti niðurstöðuna en deilt var um aukavinnu kennara. Vinnan fólst í því að veita upplýsingar um smitrakningu ef í ljós kom að smitaður nemandi hafið verið í kennslustund þeirra. Félag grunnskólakennara hélt því fram að kennarar hefðu aldrei fallist á það að smitrakning, utan vinnutíma, væri sjálfboðaliðavinna.
Þrátt fyrir útskýringu kennara, féllst Félagsdómur á rök Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sagði sambandið að fyrirmæli smitrakningateymis og sóttvarnarlæknis, gæti ekki talist hluti af starfsskyldum sem greiða skuli fyrir. Fyrirmælin væru þannig ekki frá skólastjórnendum.
Lesa má dóminn í heild sinni hér.