Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ til margra ára er farin í leyfi. Mikill þrýstingur hefur verið á Klöru, að hún axli líka sína ábyrgð í tengslum við hneykslismál tengdum sambandinu.
Guðni Bergsson sagði af sér formennsku og sömuleiðis öll stjórnin.
Klara hefur lýst því yfir að hún hafi ekki íhugað afsögn, en þá jókst pressan á hana enn meira. Hún fundaði með Lilju Dögg Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í gær.
Nú er það ljóst að Klara hefur stigið til hliðar, tímabundið að minnsta kosti. Framhaldið mun eflaust ráðast mjög fljótlega enda getur svo stórt samband sem KSÍ er ekki lengi verið stjórnlaust.
Ekki er enn vitað hvort fundur Klöru með Lilju í gær hafi haft úrslitaáhrif á að Klara er komin í leyfi.