Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson greindi frá því í Bítinu áðan að hann væri að glíma við krabbamein.
Síðustu mánuði fékk hann ekki góðar fréttir:
„Ég greinist með krabbamein í september í fyrra. Ég var alltaf hraustur eins og fíll. Læknirinn fann sepa og tók þá úr mér, og allt virtist í góðu lagi; þetta er blöðruhálskrabbamein.“
Hann bætti við:
„Svo fer ég í lyfjameðferð. Læknirinn sagði mér að ég yrði bara að kýla strax á meðferð og var að klára hana um daginn. Þetta er eitur sem drepur krabbameinið og manni leið bölvanlega; þetta leggst á allan skrokkinn – þetta er rosalegt. Mig langar að lifa og núna geri ég allt sem mér er sagt.“
Kristján er ástríðufullur maður og hann ætlar að berjast, enda elskar hann lífið og fólkið sitt með eindæmum mikið.