Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar er alltaf á fleygiferð og síðast tók hún á móti „hagfræðingum frá ASÍ og alþýðusamböndum Norðurlanda í gær. Ræddum meðal annars stöðu jafnaðarflokkanna á Norðurlöndum og horfur í efnahagsmálum.“
Hún segir að við „vorum sammála um mikilvægi þess að stjórnvöld hafi kjark til að ráðast í aðgerðir gegn verðbólgu og ójöfnuði. Þar hefur ríkisvaldið sannarlega lykilhlutverki að gegna.“
Kristrún er á því að „ábyrg efnahags- og velferðarstjórn er eitt stærsta kjaramálið fyrir þorra launafólks. Annars eru nefndir Alþingis komnar í gang og þingfundir hefjast aftur eftir helgi.“
Það styttist í stóru stundina hjá Kristrúnu sem gengur nú með sitt annað barn:
„Ég næ væntanlega smá skorpu þar áður en ég fer í fæðingarorlof. Hef ekki getað verið á faraldsfæti upp á síðkastið vegna ástandsins á mér — en það kemur aftur þegar líður á árið!“