Föstudagur 26. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Lenya Rún fengið ótal nafnlaus fordóma skilaboð: „Ég er minnt á að ég sé brúnni en margir“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Síðustu vikur og mánuði hef ég reynt að vera sýnileg í framboði mínu til Alþingis, enda er það venjan í kosningabaráttu. Það hefur hins vegar farið fyrir brjóstið á mörgu fólki, ekki vegna þess að ég er Pírati og þau eru ósammála mér, heldur vegna þess að þau telja mig vera „útlending” segir Lenya Rún Taha Karim og bætir við:

„Ég hef fengið ótal nafnlaus skilaboð á samfélagsmiðlum að undanförnu þar sem ég er minnt á að ég sé brúnni en margir. Svo er nafnið mitt líka öðruvísi. Það eitt og sér er nóg fyrir nafnlausa liðið til að efast um kjörgengi mitt. Það er algjör óþarfi að fara út í efni skilaboðanna, þetta er bara gamaldags rasismi sem ég hef heyrt margoft áður.“

Lenya Rún segir að „það sem nafnlausa liðið veit hins vegar ekki er að ég er ekki sérstaklega mikill útlendingur. Ég er fædd og uppalin í Kópavogi og hef búið nær allt mitt líf á Íslandi. Ég gekk í Salaskóla, Menntaskólann við Sund og síðan Háskóla Íslands. Ég er með traust öryggisnet á Íslandi; ég á fjölskyldu hér, góða vini og bý í öruggu húsnæði. Ég er því í betri stöðu en mörg – ekki síst þegar horft er til þeirra fjölmörgu „raunverulegu” útlendinga sem láta þetta samfélag okkar ganga.“

Hún bendir á þá staðreynd að um „fimmti hver á íslenskum vinnumarkaði er af erlendu bergi brotinn. Sama hvort það er í ferðaþjónustu, fiskvinnslu, veitingarekstri, félagsþjónustu eða byggingariðnaði þá eru útlendingar á Íslandi ómissandi. Ég endurtek: Ísland myndi einfaldlega ekki ganga án útlendinga.“

Og bætir við:

„Við lifum hins vegar á tímum þar sem hatursorðræða í garð útlendinga og Íslendinga með erlendan bakgrunn fær að grassera. Þar sem nasistar festa hakakrossa á auglýsingaskilti af Birtu vinkonu minni og skrifa „Við erum alls staðar.” Þetta er alvarleg þróun og það væri ábyrgðarlaust að taka hana ekki alvarlega,“ og spyr:

- Auglýsing -

„Hvað er hægt að gera?“

Lenya Rún segist oft þurfa að spyrja sjálfa sig oft „hvernig hægt sé að uppræta vandann en ekki einungis ráðast að birtingarmyndum hans. Ég óttast hins vegar að það sé hvorki ein né einföld lausn við þessu. Það væri að minnsta kosti frekar súrt ef lausnin væri einföld en við hefðum samt ekki hrint henni í framkvæmd.“

Hún óskar þess að lögreglan og dómskerfið myndu taka „harðar á fólki sem beinlínis hvetur til ofbeldis gegn þeim sem eru öðruvísi en það sjálft. Það eru einfaldlega til mýmörg dæmi um það hvernig óáreitt hatursorðræða leiðir til raunverulegra hatursglæpa. Ef stjórnvöld og stjórnmálafólk myndu senda skýr skilaboð um að slíkur munnsöfnuður sé ekki aðeins óæskilegur heldur beinlínis hættulegur þá myndi það vitaskuld hafa einhver áhrif. En það myndi samt sem áður ekki ráðast að rót vandans.“

- Auglýsing -

Hún nefnir að „við tölum oft um að auðvelda útlendingum að aðlagast samfélaginu á Íslandi – sem er auðvitað gríðarlega mikilvægt. Það gerir engum gott að vera hornreka í samfélaginu, hvort sem það eru útlendingar eða Íslendingar. Þess vegna er svo mikilvægt að styðja við fjölmenningarsetur, íslenskunám og aðra kennslu sem auðveldar fólki að komast inn í samfélagið sem fyrst og byrja að gefa af sér.“

Bætir við:

„Við tölum hins vegar minna um hina hliðina á peningnum. Að auðvelda Íslendingum að aðlagast útlendingum. Eins og ég sagði áður þá eru útlendingarnir í íslensku samfélagi fjöldamargir og auðvitað eru það viðbrigði fyrir fólk þegar allt í einu heyrast ólík tungumál á vinnustaðnum og fólk með framandi nöfn og öðruvísi litarhaft eru á hverju strái. Það er eðlilegt að einhverjum finnist það óvenjulegt og við megum ekki gera lítið úr því.

Þvert á móti held ég að það væri miklu farsælla að við hefðum það í huga og ávörpuðum það, hvort sem það væri í formi einhverrar herferðar eða formlegrar fræðslu. Fyrsta skrefið gæti til dæmis verið samfélagsátak um mikilvægi útlendinga fyrir íslenskt þjóðfélag. Ef við viljum tryggja góð lífskjör hér til framtíðar þá getum við einfaldlega ekki án þeirra verið.

Ég er ekki á höttunum eftir neinni meðaumkun. Ég hef lifað við rasísk skilaboð og framkomu allt mitt líf. Ég var fyrsti brúni nemandinn í skólanum mínum í Salahverfi og hef verið kölluð allt sem þú getur ímyndað þér. Það hefur ekki stoppað mig til þessa og það stoppar mig ekki núna,“ segir ákveðin Lenya og heldur áfram:

„Ég býð mig fram því ég vil róttækar breytingar í þágu íslenskra námsmanna. Ég býð mig fram því ég vil róttækni í loftslagsmálum. Ég býð mig fram því ég vil koma fram við vímuefnaneytendur eins og manneskjur, ekki glæpamenn.

Ég býð mig fram því ég vil vera þessi fyrirmynd í stjórnmálum sem ég hafði ekki þegar ég var yngri og hvetja annað fólk af erlendu bergi brotnu til að taka þátt í stjórnmálum. Við erum líka hluti af þessu samfélagi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -