Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Líkamsárás við Lyfju á Selfossi – lögreglan óskar eftir vitnum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á Suðurlandi óskar eftir hugsanlegum vitnum að líkasárás sem átti sér stað fyrir utan Lyfju á Selfossi um klukkan 13 í dag, sunnudaginn 24. maí.

Ekki kemur fram á Facebook-síðu Lögreglunnar á Suðurlandi hversu alvarlegt málið er, eða hversu margir áttu hlut að máli, en þeir sem gætu gefið upplýsingar um málið eru vinsamlega beðnir hafa samband við 112 og biðja um samband við varðstjóra á Selfossi eða í tölvupósti á [email protected].

Uppfært: Færsla lögrelunnar á Suðurlandi hefur verið uppfærð og er atburðarrásinni lýst í færslunni. Þar segir að karlmaður á fertugsaldri sé talinn hafa orðið fyrir árás annars manns sem sagður er hafa slegið þolandann með einhverju áhaldi í höfuðið með þeim afleiðingum að hann er kinnbeinsbrotinn. Meintur gerandi er talinn hafa farið á brott í bifreið strax eftir atvikið.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -