Þriðjudagur 23. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Lögreglan lýsir eftir Sean: Ekkert spurst til hans frá júní 2018

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sean Aloysius Marius Bradley sem fæddur er 22. apríl 1957 og skráður til búsetu að Austurvegi 34 á Selfossi.

Sean er 167 sm hár. Hann er hreyfiskertur og gengur einungis stuttar vegalengdir án stuðnings.

Mynd úr vegabréfi Sean.

Eftir því sem næst verður komist hélt hann til Malaga á Spáni í júni 2018, en ekki hefur frést af honum eftir það eða tekist að staðfesta hvar hann kunni að vera.   Nánustu ættingjar Sean eru búsettir í Bretlandi og hafa óskað eftir því að lýst verði eftir honum á alþjóðavísu.

Þeir sem mögulega kunna að hafa upplýsingar um hvar Sean Bradley er að finna eða ferðir hans eru beðnir að koma þeim upplýsingum til lögreglunnar á Suðurlandi á netfangið [email protected] eða í síma 444 2000.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -