Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Lögreglumaðurinn sem skráði vopnið skoðaði það ekki en fór eftir upplýsingum frá Guðjóni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

þrjár heilar vikur liðu frá því að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu varð fullkunnugt um tengsl föður ríkisstjóra við ólöglega byssu – sem fannst við húsleit fyrir rúmum fjórum árum – þar til málinu var vísað til annars lögregluembættis, eins og kemur fram í frétt Vísis.

Faðir Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra er Guðjón Valdimarsson; hefur hann verið til umfjöllunar fjölmiðla undanfarna daga vegna meintrar sölu hans á ólöglegum og sem og hálfsjálfvirkum vopnum.

Dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, sagði í samtali við fréttastofu Vísis að Sigríður Björk, þáverandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hafi fylgt reglum og tilkynnt um tengsl sín; hafi málið þá verið flutt til annars embættis.

Kemur fram í dómsgögnum að vopnin voru hvorki skoðuð, og ekkert upprunavottorð afhent lögreglu er hún skráði vopnin á sínum tíma; þá hefur einnig komið fram að um fjörutíu óskráð vopn hafi fundist á heimili Guðjóns hans þegar húsleit var framkvæmd þar í tengslum við rannsókn á hryðjuverkamálinu svokallaða.

Í ársbyrjun 2021 var maður dæmdur í Landsrétti fyrir að eiga breyttan hálfsjálfvirkan riffil, sem hann keypti af Guðjóni, föður Sigríðar.

Hefur maðurinn haldið því fram frá því að lögregla gerði húsleit heima hjá honum við upphaf rannsóknarinnar að riffillinn hafi verið breyttur – í ólöglegri mynd – þegar Guðjón seldi manninum riffilinn.

- Auglýsing -

Segir hann að Guðjón hafi sannfært hann um að riffillinn væri algjörlega löglegur þar sem hann hafi verið skráður áður en vopnalögunum var breytt:

Fram kom í skýrslu lögreglu að maðurinn hafi við húsleit, þann 26. júní, árið 2018, nefnt Guðjón; sakað hann um að hafa breytt vopninu ólöglega.

En það var þó ekki fyrr en þremur vikum síðar sem ríkissaksóknari fól lögreglustjóranum á Vesturlandi meðferð málsins; vegna áðurnefdra tengsla Sigríðar Bjarkar, sem var þá starfandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.

- Auglýsing -

Lögregluþjónninn sem rannsakaði málið þessar þrjár vikur, sagðist ekkert hafa vitað um tengsl byssusmiðsins, Guðjóns, við Sigríði lögreglustjóra; hann hafi ekki lesið frumskýrsluna, þar sem komu fram tengsl Guðjóns við málið, og sagt sig frá málinu um leið og tengslin voru ljós.

Einnig kemur fram að lögreglumaðurinn sem skráði vopnið hafi ekki skoðað það við skráningu – heldur farið eftir upplýsingum frá Guðjóni föður Sigríðar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -