Laugardagur 27. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

„Meiningin er að selja kjósendum að Bjarni hafi skilað sínu en fólkið í heilbrigðiskerfinu ekki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Píratinn Halldór Auðar Svansson segir að „fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins er með áhugavert kosningaupplegg um yfirstandandi Covid-bylgju. Hann segir það óásættanlegt að Landspítalinn ráði ekki við álagið vegna hennar og að það sé alveg bölvað að það þurfi að standa í sóttvarnaaðgerðum út af því. Þar vísar hann í skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið McKinsey vann nýlega fyrir heilbrigðisráðuneytið, en hún á víst að sýna fram á að framleiðni í heilbrigðiskerfinu hafi ekki aukist í samræmi við aukið fjármagn og að lausnin sé hreint ekki enn aukið fjármagn.“

Píratinn Halldór Auðar Svansson.

Halldór er á því að hér sé „greinilega meiningin að selja kjósendum þá hugmynd að fjármálaráðherrann hafi skilað sínu, auknum framlögum, en að kenna megi einhverju allt öðru en honum um að þessi framlög hafi ekki nýst nægilega vel. Í kaupbæti fylgir sú hugmynd að bara ef framlögin myndu nýtast betur þá mætti kannski komast hjá því að beita almenning sóttvarnaaðgerðum. Kosningauppleggið er þannig að ráðherrann sem skilaði sínu neyðist til að beita sóttvarnaaðgerðum af því að einhverjir aðrir en hann eru bara ekki að standa sig.“

Hann nefnir að segja megi „æði margt um þetta upplegg ráðherrans, stóryrði eins og ómerkilegheit, ábyrgðarleysi og óskhyggja koma upp í hugann, en kannski er réttast að halda sig bara við einfalda áréttingu á því hvað stendur í alvörunni í umræddri skýrslu McKinsey. Ég ætla að forðast að sinni þann súra pytt að rýna í hvort heilbrigðiskerfið „eigi“ að geta ráðið við Covid-bylgjuna án almennra sóttvarnaaðgerða. Það er einfaldara verkefni að skoða bara hvað segir í skýrslunni og það er líka hægt að setja í almennara samhengi en það aukaálag á kerfið sem Covid er að valda. Umræðan er jú um heilbrigðiskerfið í heild sinni,“ segir Halldór og bætir við:

„Staðreyndin er nefnilega sú að í þessari skýrslu er ekki skoðað sérstaklega hvernig aukin fjárframlög hafa verið að nýtast og hvergi er fullyrt að það sé sérstakt áhyggjuefni að framleiðni hafi ekki aukist til samræmis við fjármagn. Vissulega er komið inn á að framleiðni í ákveðnum þáttum kerfisins hafi minnkað og að fjárframlög hafi aukist en það er mjög ódýr brella að fullyrða út frá þessu að framlögin gætu verið að skila sér betur. Það eru ýmsar aðrar skýringar sem ekki er hægt að útiloka – ein er sú að framlögin séu einfaldlega enn ekki nægilega mikil til að sporna almennilega við vandamálum sem eru að valda minnkaðri framleiðni. Að þó að þau séu að aukast þá sé álag á ákveðna þætti kerfisins að aukast enn hraðar.“

Og bætir þessu við:

„Það eru raunar vísbendingar í skýrslunni sjálfri sem renna stoðum undir þessa kenningu. Framleiðni í skurðaðgerðum er til að mynda betri en á viðmiðunarsjúkrahúsum á Skáni en í skýrslunni segir að framleiðni skorti þegar kemur að flöskuhálsum á borð við:

- Auglýsing -

Óvanalega hátt hlutfall fólks sem leitar til Landspítalans vegna einfaldari vandamála. Þetta megi leysa með því að efla heilsugæslu.

Óvanalega langan legutíma. Þetta megi leysa með því að fjölga úrræðum á hjúkrunarheimilum.“

Einnig að „aðra alveg frekar sterka vísbendingu er að finna í samanburði á heildarútgjöldum til heilbrigðismála á mann milli Íslands og annarra Norðurlanda, þar sem fram kemur að þrátt fyrir aukningu undanfarin ár þá stendur Ísland þeim enn að baki.“

- Auglýsing -

Halldór segir að samantekið þá sé ekki erfitt að lesa úr þessu að spítalarnir sjálfir séu með ágæta framleiðni en að skortur á fjármögnun í þeim hlutum kerfisins sem gætu verið að létta álaginu af þeim sé að valda óskilvirkni.

„Að lausnirnar felist þannig ekki í því láta tannhjól íslenska kerfisins bara snúast enn hraðar, heldur í því að bæta fleirum við – þá óhjákvæmilega með auknum tilkostnaði. Svona svipað og samanburðarlöndin eru að gera þetta.

Fjármálaráðherrann bara getur ekki vikið sér svo auðveldlega undan þeirri spurningu hvort aukin framlög myndu ekki skila sér í betra kerfi, eiginlega síst af öllu með því að vísa í McKinsey. Alvöru McKinsey segir nefnilega annað en hann heldur fram.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -