Föstudagur 19. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Miðstjórn ASÍ: „Aðgerðarleysi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur gengur þvert á viðtekin viðbrögð“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

ASÍ segir í tilkynningu að „miðstjórn Alþýðusambands Íslands gagnrýnir harðlega stýrivaxtahækkun Seðlabankans; meginvextir bankans eru nú 6,5% og hafa ekki verið hærri í þrettán ár. Hækkunin kemur í kjölfar vaxandi verðbólgu en hækkun vísitölunnar í janúar mátti fyrst og fremst rekja til ákvarðana ríkisstjórnarinnar.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Miðstjórn ASÍ mun boða til formannafundar til að ræða viðbrögð og aðgerðir.“

Ljóst er að forysta ASÍ er ekki sátt við ástandið hér á landi:

„Verðbólga mælist 9,9%. Miðstjórn hafnar því að skýringuna sé að finna í kjarasamningum á almenna vinnumarkaðinum. Aðilar vinnumarkaðarins voru sammála um að samningarnir myndu ekki ýta undir verðbólgu. Seðlabankinn verður að líta sér nær, að stórum hluta má rekja verðbólguna til heimatilbúinnar fasteignabólu og alþjóðlegra verðhækkana.“

Ríkisstjórn Íslands.

Segir ennfremur í tilkynningunni að „miðstjórn Alþýðusambandsins hefur áður vakið á því athygli að hér eru ekki að verki óumbreytanleg lögmál. Ríkisstjórn Íslands ákvað með samþykki þeirra þriggja stjórnmálaflokka sem að henni standa að blása í glæður verðbólgu með hækkunum á ýmsum sköttum og gjöldum. Nú blasa afleiðingar þeirrar fráleitu ákvörðunar við almenningi. Vextir hækka, húsnæðislánin og húsaleiga verða enn þyngri í vöfum og kjörin verri en áður. Allt eru þetta mannanna verk og líkt og jafnan koma slíkar aðgerðir verst niður á þeim sem búa við erfiðustu afkomuna.“

Katrín Jakobsdóttir.

Að endingu segir að „aðgerðarleysi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur gengur þvert á viðtekin viðbrögð í nágrannalöndum þar sem ráðamenn beita tækjum ríkisvaldsins til að lina áhrif afkomukreppunnar og vinna skipulega að því að hemja verðbólgu. Í þeirri staðreynd birtist forgangsröðun ríkisstjórnarinnar og sinnuleysi gagnvart afkomu fólksins í landinu.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -