- Auglýsing -
Veðrið hefur leikið Íslendinga grátt í nokkrar vikur; gamla árið kvaddi með kulda og meiri kulda; nýja árið hefur verið þannig nokkurnveginn: Kuldi og snjór; hálka og ófærð.
En nú er tekið að hlýna en óveður geysar þó úti núna.
Varla er hægt að sjá á milli húsa í Grindavík, eins og myndin við greinina ber augljóslega með sér.
Vonandi fer veðrið að skána fljótlega – enda hefur kuldatíðin tekið á og flestum finnst nóg komið.
Vonandi er veðrið núna stormurinn á undan logninu.