Laugardagur 27. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Neyðarfundur hjá KSÍ: „Guðni laug og þarf að segja af sér“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stjórn KSÍ er á neyðarfundi að því er fram kom í útvarpsþætti Fótbolta.net. Málefni KSÍ og Guðna Bergssonar formanns KSÍ voru til umræðu. Segja má að Guðni og KSÍ hafi fengið að finna til tevatnsins í gær eftir að Þórhildur Gyða Arnardóttir steig fram í fréttum RÚV í gær og greindi frá því að árið 2017 hafi þekktur landsliðsmaður áreitt hana kynferðislega og ráðist svo á hana: Hún sagði að Guðna og KSÍ hafi verið vel kunnugt um málið.

Málið eldfima í tengslum við KSÍ var rætt á í áðurnefndum útvarpsþætti Fótbolta.net á X977 í dag.

„Maður er hálf sleginn yfir þessari atburðarás sem er búinn að vera í gangi, virkilega vond vika fyrir Knattspyrnusambandið. Guðni gripinn í bólinu að fara ekki með rétt mál, hann sagði að þetta væri misskilningur. Ótrúleg ummæli, hann ar ekki skýr í málflutningi sínum við Stöð 2 og Kastljós, það þarf enginn að segja mér að þetta sé eins og lögreglustöð þar sem endalaust af kvörtunum komi inn. Þú gleymir ekki svona,“ sagði blaðamaðurinn Henry Birgir Gunnarsson og bætti við:

„Þetta byrjar á blaðamannafundi KSÍ í vikunni. Hann var afar sérstakur, þar fór KSÍ illa með dauðafæri. Þar gat KSÍ tæklað málin og sýnt samfélagslega ábyrgð, menn voru með stæla og voru í vörn. Formaðurinn var þess utan í felum, hann mætti ekki á fundinn. Þarna var tækifæri fyrir Guðna að sýna hvernig leiðtogi hann er, hann faldi sig á efri hæðinni. Öll svör og annað sem komu á þessum fundi voru mjög skrýtin, það er eins og menn hafi ekkert undirbúið sig. Það vissu allir hvað myndi gerast á þessum fundi, það var eins og það væri ekkert undirbúið.“

Hann telur að að Guðni þurfi að segja af sér því „hann er í þröngri stöðu. Guðni bara laug, hann fór með rangt mál. Yfirlýsing KSÍ frá 17. ágúst heldur engu vatni, það er rosalega erfitt að sjá það að Guðna sé stætt að halda starfi. Það verður áfram sótt að honum, það er ábyrgð stjórnar og félaganna að þeirra vilji í þessu máli komi fram. Pressan er í Laugardalnum.“

Elvar Geir Magnússon er stjórnandi útvarpsþáttarins og hann segir málið afar alvarlegt, en hann segir að Guðni vildi ekki mæta í þáttinn og ræða málið.

- Auglýsing -

„Þetta er grafalvarlegt mál. Guðna var boðið í þáttinn, sem hann afþakkaði. Væntanlega svakaleg fundarhöld, það þarf að bregðast við. Hvernig er hægt að rétta ímyndina við, margir kallað eftir því að Guðni segi af sér? Er það eina leiðin, ýmsar sögur að ganga um fleiri landsliðsmenn en þann sem var í gær. Ég sé ekki undankomuleið, það kæmi mér á óvart ef hann myndi halda formannsstólnum.“

Annar blaðamaður, Benedikt Bóas Hinriksson, telur að KSÍ hafi átt gera betur og skynja betur hvaða umræða sé búin að vera í gangi í þjóðfélaginu í alllt sumar:

„Það vissu allir hvað var að koma og hvað væri að fara að gerast, fyrir mér þá snýst þetta um Gylfa málið, Eiðs Smára málið, pistlarnir og Lagerbäck. Það eru þessi fjögur mál. Það er sótt að úr öllum áttum, þetta er ekki eins og formaðurinn sé úti í horni. Hann er í holu, það verður erfitt að grafa sig upp úr henni.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -