Föstudagur 29. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Nokkuð um ölvunarakstur í gær og nótt

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í dagbók lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar kemur fram að lögregla hafi þurft að stoppa nokkra ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í miðbænum í kringum miðnætti í gær vegna gruns um akstur undir áhrifum og annar ökumaður var stöðvaður í Hlíðunum vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá hafði fíkniefni í fórum sér. Tveir voru stöðvaðir í Árbæ af sömu ástæðu.

Laust fyrir miðnætti var einn ökumaður stöðvaður í Kópavogi vegna gruns um akstur undir áhrifum. Þá er sá ökumaður grunaður um vörslu fíkniefna er fram kemur í dagbók lögreglu.

Lögregla stöðvaði einnig ökumann í Grafarholti klukkan 02:35 vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, sá reyndist sviptur ökuréttindum,

Lögreglu bárust þá nokkrar tilkynningar í nótt um innbrot, bæði í miðbænum og í Laugardal.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -