Mannanafnanefnd samþykkti tíu beiðnir um ný nöfn þann 11. desember. Nefndin hafnaði þá tveimur beiðnum, meðal annars beiðni um nafnið Bastian.
Mannanafnanefnd samþykkti átta beiðnir um ný eiginnöfn með úrskurðum 11. desember.
Nöfnin sem nefndin samþykkti eru karlmannsnöfnin Arían, Sófús, Siggi, Ramses, Lambi og Ormsvíkingur og kvenmannsnöfnin Deda og Erica sem ritmynd af nafninu Erika.
Nefndin samþykkti þá einnig beiðnir um millinöfnin Kvist og Hlíðbekk.
Nöfnin sem nefndin hafnaði er karlmannsnöfnin Arian, Bastian
Um nafnið Bastian í úrskurði nefndarinnar segir m.a.: „…í íslensku kemur einhljóðið a aldrei fyrir næst á eftir einhljóðinu i í ósamsettum orðum. Þess vegna telst nafnið Bastian brjóta í bág við íslenskt málkerfi ef það er borið fram eftir stafanna hljóðan.“