Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Ný íslensk jöklavefsjá opnuð í gær – sýnir skýrt breytingarnar sem eru að verða á jöklunum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íslensk jöklavefsjá, islenskirjoklar.is, var formlega opnuð í stjörnuveri Perlunnar í gær í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands. Helgi Björnsson og Oddur Sigurðsson jöklafræðingar opnuðu jöklavefsjána en auk þeirra voru sérfræðingar Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskólans og Landsvirkjunar sem fjölluðu um jöklamælingar, sýndu ljósmyndir af jöklum og fóru yfir virkni vefsjárinnar og gögn sem hún sýnir.

Jöklavefsjáin kemur upplýsingum um jökla og jöklabreytingar á framfæri við almenning og áhugafólk um náttúruvísindi og áhrif loftslagsbreytinga á náttúru landsins. Hún gefur jafnt vísindamönnum, nemendum í skólum landsins og áhugasömum almenningi kost á að kynna sér jöklamælingar og nálgast mæligögn og aðrar upplýsingar. Undirliggjandi vefþjónustur sem sýna útlínur jökla á mismunandi tímum og fleiri mælingar bjóða upp á hagnýtingu hjá ýmsum aðilum sem fást við greiningu landupplýsinga og rannsóknir á náttúru landsins, m.a. sérfræðingum í orkuiðnaði, samgöngum, ferðaþjónustu og á fleiri sviðum.

Vefsjáin birtir einnig fjölmargar ljósmyndir frá mismunandi tímum. Samanburðarljósmyndir sem teknar eru á sama stað með sama sjónarhorni sýna skýrt breytingarnar sem eru að verða á íslensku jöklunum með sívaxandi hraða.

Gögn í jöklavefsjá eru opin til afnota í hvers kyns verkefnum með stöðluðum skilmálum sem nú eru að ryðja sér til rúms í vísindaheiminum í tengslum við opið aðgengi að vísindagögnum. Jöklavefsjáin veitir opinn aðgang í fyrsta sinn að mörgum gagnanna sem hún sýnir.

Loftslagssjóður og verkefnið „Hörfandi jöklar“ á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins styrkja smíði og rekstur jöklavefsjárinnar. Aðrir samstarfsaðilar eru Vatnajökulsþjóðgarður og Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Hornafirði.

- Auglýsing -

Skipulegar mælingar frá 1930

Jón Eyþórsson hóf skipulegar mælingar á stöðu jökulsporða víða um land árið 1930 og fékk heimamenn til liðs við sig við mælingarnar. Sjálfboðaliðar JÖRFÍ hafa séð um mælingarnar frá stofnun félagsins 1950. Afkoma Vatnajökuls, Hofsjökuls og Langjökuls er mæld árlega af starfsmönnum Jarðvísindastofnunar, Veðurstofunnar og Landsvirkjunar og afkoma Mýrdalsjökuls af félögum JÖRFÍ. Útlínur jökla á ýmsum tímum hafa verið dregnar eftir loftmyndum, gervitunglamyndum, kortum og leysimælingum á yfirborði jökla en einnig raktar með GPS-mælingum og greiningu á jökulgörðum og öðrum jarðfræðilegum ummerkjum um fyrri stöðu jökulsporða.

- Auglýsing -

Sýning ítilefni af 70+1 ára afmæli Jöklarannsóknafélagsins

Vorferð er sýning í Dropanum, sérsýningarrými Vatnasýningar, sem sett var upp í nóvember 2021 í tilefni af 70+1 ára afmæli Jöklarannsóknafélagsins, í samstarfi félagsins og Náttúruminjasafnsins. Sýningin varpar ljósi á sögu félagsins, segir frá skálabyggingum, ferðalögum á jökli, sporðamælingum, rannsóknarverkefnum sem unnið hefur verið að í vorferðum á Vatnajökul, jöklabakteríunni og tímaritinu Jökli.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -