Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.8 C
Reykjavik

Ofbeldismaður á stolnum leigubíl eltur uppi – Dularfullt ferðalag skrifborðsstóls á Miklubraut

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan leitaði að skrifborðastól sem hermt var að væri á Miklubraut við Réttarholtsveg. Stóllinn var horfinn á braut þegar laganna verði bar að og hefur ekki fundist.

Ölvaður og hömlulaus maður í austurborginni trylltist þegar lögregla greip inn í málin þar sem hann var til vandræða. Lögreglan ætlaði upphaflega að koma manninum heim en hann brást illa við og hélt áfram óspektum. Dólgurinn var þá settur í handjárn til að tryggja öryggi þeirra sem voru nærri. Hann var í framhaldinu læstur inni í fangaklefa þar til af honum rennur æðið og víman.

Lögreglan handtók útlending sem talið er að dvelji ólöglega í landinu. Hann er grunaður um vörslu fíkniefna. Hann var fangelsaður meðan á rannsókn málsins stendur.

Leigubilstjórar áttu í nokkrum erfiðleikum í nótt. Einn óskaði aðstoðar vegna farþega sem neitaði að greiða fyrir umbeðinn akstur. Annar lenti í miklum hremmingum þegar farþegi réðst á hann og rændi leigubílstjórann bifreið sinni  og ók á brott. Lögreglan brá skjótt við og náði ofbeldismanninum sem var handtekinn, grunaður um rán, akstur undir áhrifum áfengis auk fleiri brota. Bílræninginn var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Leigubílstjórinn leitaði á bráðamóttöku vegna áverka sinna.

Þriðji leigubílstjórinn var svo í vanda í Breiðholti vegna farþega sem var með óspektir. Lögreglan mætti og kom skikk á málin.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -