Ældi í leigubíl og neitaði að borga
Lögreglu var tilkynnt um að ökumaður hefði keyrt á vegrið á Hafnarfjarðarvegi og haldið svo áfram akstri. Lagði ökumaðurinn svo bifreið sinni og gerði heiðarlega tilraun til þess að flýja. Lögreglan náði honum þó og kom þá í ljós að maðurinn var drukkinn. Var hann vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
Þá fékk leigubílstjóri til sín fremur óþægilegan mann í bifreið sína en sá ældi upp í leigubifreiðinni og neitaði svo að borga fyrir farið. Greiddi maðurinn skuld sína og fór heim til sín, eftir að lögreglan mætti á vettvang.
Meig á gólf skemmtistaðar
Aðili var til vandræða á skemmtistað í Hafnarfirði. Hafði hann gert sér lítið fyrir og kastað af sér þvagi inni á staðnum og sparkað í bifreið sem hafði verið lagt fyrir utan staðinn.
Einnig fékk lögreglan tilkynningu vegna líkamsárásar á skemmtistað í Hafnarfirði.
Aukreitis var tilkynnt um kóffullan mann sem lá á jörðinni í miðbæ Kópavogs. Var honum ekið heim til sín.
Þá var tilkynnt um rokfulla konu sem haldið var að dyravörðum í hverfi 203 í Kópavogi. Var hún handtekin fyrir líkamsárás og vistuð í fangageymslu lögreglu í þágu rannsóknar málsins.