Lögreglan fangelsaði mann sem dvelur ólöglega í landinu. Afskipti voru höfð af honum vegna gruns um að hann hefði fíkniefni í sinni vörslu. Við nánari skoðun reyndist einstaklingurinn í ólöglegri dvöl í landinu. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Ökumaður undir annarlegum áhrifum missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði út í snjóruðningi þar sem bifreið hans stóð föst. Lítið tjón varð á bifreiðinni. Ökumaðurinn var látinn svara til saka.
Lögreglan var kölluð út á hótel í austurborginni þar sem driukkinn einstaklingur neitaði þeim fyrirmælum starfsfólks að hafa sig á brott, Lögreglumenn náðui að koma manninnum út og skapa frið á hótelinu. Óeirðaseggurinn var ekki gestur á hótelinu.
Í Hafnarfirði dró til þeirra tíðinda í nótt að ökumaður var stöðvaður, grunaður um að vera undir annarlegum áhrifum. Við nánarii skoðun kom í ljós að hann hafði fíkniefni í fórum sínum og var vopnaður piparúða. Hann var handtekinn og þarf að svara til saka fyrir vörslu fíkniefna og vopnalagabrot.