Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Ráð til þess að efla líkamsmynd barna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rannsóknir hafa sýnt að neikvætt viðhorf til líkama og útlits tengist margskonar geðrænum vanda meðal ungmenna, s.s. kvíða, átröskunum, þunglyndi og jafnvel sjálfsvígstilraunum. Einnig hefur komið í ljós að líkamsmynd hefur áhrif á heilsu og lífsvenjur.

 

Embætti landlæknis hefur birt nokkur ráð til þess að efla líkamsmynd barna:

  1. Allir eru öðruvísi

Kenndu barninu þínu að fjölbreytileiki í líkamsvexti sé eðlilegur. Við erum mismunandi í laginu, það er sjálfsögð staðreynd sem allir ættu að virða.

  1. Útrýmum fordómum

Kenndu barninu þínu að það sé ekki rétt að stríða eða tala illa um aðra vegna þess hvernig þeir líta út. Fordómar vegna holdafars og útlits eru alveg jafn slæmir og skaðlegir og aðrir fordómar.

  1. Elskaðu líkama þinn

Aldrei tala illa um vaxtarlag þitt svo barnið þitt heyri. Lærðu að þykja vænt um líkama þinn þótt hann sé ekki fullkominn því þannig lærir barnið að bera virðingu fyrir sínum líkama.

  1. Eflum gagnrýna hugsun

Fræddu barnið um óraunhæf útlitsviðmið í samfélaginu og hvernig þau birtast, t.d. í fjölmiðlum, barnaefni og leikföngum. Storkaðu fordómum vegna holdafars hvenær sem þú rekst á þá.

- Auglýsing -
  1. Kenndu barninu þínu að líkami þess sé góður líkami

Kenndu barninu þínu að vera stolt af sínum sérkennum. Aldrei segja neitt neikvætt um líkama barnsins þíns og taktu hart á því ef einhver annar gerir það.

  1. Hlustaðu á barnið þitt

Ef barnið lýsir áhyggjum af líkamsvexti sínum er mikilvægt að hlusta. Reyndu að komast að því hvað býr þarna að baki. Sýndu stuðning og ekki líta svo á að holdafari barnsins sé um að kenna. Ef barnið hefur orðið fyrir höfnun vegna þess hvernig það lítur út þá er vandamálið í umhverfinu, ekki hjá barninu.

  1. Hegðun en ekki holdafar

Ef þú hefur áhyggjur af lífsvenjum barnsins þíns skaltu beina sjónum að hegðun þess en ekki holdafari. Skapaðu umhverfi þar sem barnið fær næg tækifæri til að borða hollan mat og hreyfa sig sér til ánægju.

- Auglýsing -

Hvorki þú né barnið ættuð hins vegar að líta á heilbrigðar lífsvenjur sem grenningaraðferð, heldur eitthvað sem allir þurfa að gera til þess að halda heilsu og líða vel.

Sjá einnig: „Líkami okkar elskar fitu“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -