Illugi Jökulsson, samfélagsrýnir með meiru, vill skoða aðild að ESB og gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir ósveigjanleika sinn í þeim málum.
Hann skrifar á Facebook-síðu sinni og vitnar til greinar er birtist í Fréttablaðinu, sem ber yfirskriftina: Þjóðin aftur komin með áhuga á ESB en afstaða ríkisstjórnarinnar óbreytt.
„Ríkisstjórnin „sér enga ástæðu til að skoða ESB“ — aðild sem gæti orðið mesta hagsmunamál íslenskrar alþýðu. Nei, ríkisstjórn VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins sér enga ástæðu til að skoða einu sinni mál sem gæti losað okkur úr harðneskjuklóm ónýtrar krónu og vaxtaokurs.“
Finnst Illuga lélegt og varla í takt við þær kannanir á undanförnum misserum er sýna fram á að Íslendingar eru að verða opnari og áhugasamari fyrir aðild að ESB.
Lokaorðin Illuga í þeim málum að þessu sinni eru einfaldlega þessi:
„Drottinn minn dýri, hvað ég hlakka til að losna við þessa óhæfu ríkisstjórn.“