Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Siggi Bond um veðmálahneykslið: „Strangt til tekið vissi ég að þetta væri ólöglegt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nýverið fjallaði Heimildin um það að aga- og úrskurðarnefnd KSÍ væri með á sínu borði greinargerð frá framkvæmdarstjóra KSÍ, Klöru Bjartmarz, sem varðar yfir 100 veðmál Sigurðar Gísla Snorrasonar – oftlega kallaður Siggi Bond – knattspyrnumanns á knattspyrnuleiki síðastliðið sumar.

Þar segir að Sigurður sem lék 21 leik með Aftureldingu í næstefstu deild á síðasta ári hafi veðjað í yfir 100 skipti; kemur það fram í gögnum sem veðmálafyrirtækið, Pinnacle sendi til KSÍ.

Með öllu er óheimilt að leikmenn hér á landi veðji á leiki í íslenska boltanum.

Mál Sigga Bond er nú á borði KSÍ sem mun taka ákvörðun um refsingu.

Hann veðjaði í nokkur skipti á leiki Aftureldingar; en þó aldrei gegn liðinu:

„Strangt til tekið vissi ég að þetta væri ólöglegt. Ég vil samt taka það fram að ég veðjaði aldrei gegn mínu liði og þetta voru aldrei háar fjárhæðir sem ég var að veðja. Ég hef aldrei labbað inn á fótboltavöll með neitt annað hugarfar en að reyna að vinna leikinn og leggja mig hundrað prósent fram,“ sagði Siggi í hlaðvarpsþættinum Dr. Football.

- Auglýsing -

Hann segir að leikirnir sem hann veðjaði á voru oftlega hluti af stórum seðlum og ólíklegt að hann myndi vinna veðmálin:

„Það breytir því ekki að þetta var mjög heimskulegt af mér og gert í algjöru hugsunarleysi. Þetta kemur ekki fyrir aftur. Ég átta mig á að þetta getur haft einhverjar afleiðingar. Ég veit ekki hverjar þær verða. Við verðum bara að bíða og sjá.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -