Föstudagur 26. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Sósíalistar vilja lækka laun þingmanna og taka bílstjóra af ráðherrum: „Þjónar, ekki herrar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Á undanförnum árum hafa stjórnmálin færst frá því sem kalla mætti alþýðustjórnmál yfir í það sem er í eðli sínu elítustjórnmál. Stjórnmálaflokkarnir eru ekki lengur virk almannasamtök heldur eru þeir að mestu reknir fyrir styrki frá ríki og sveitarfélögum,“ segir Gunnar Smári Egilsson formaður Sósíalistaflokks Íslands og bætir við:

„Þróunin hefur verið sú að forysta flokkanna hefur orðið óháð grasrótinni. Nýrri flokkar eru sumir hverjir lítið annað en skel utan um forystuna,“ segir formaðurinn sem nefnir að

„í stað þess að sækja stefnu, afl og umboð til virkrar þátttöku almennra félaga kaupir forystan ráðgjöf til að styrkja sig á vettvangi elítustjórnmála – sem fyrst og fremst eru fréttir og umfjöllun fjölmiðla.“

Og niðurstaðan af áðurnefndum orðum Gunnars Smára eru „sviðsett stjórnmál sem eru sambandslaus við líf almennings; stjórnmál sem ná ekki að fjalla um það óréttlæti sem stór hluti landsmanna býr við,“ og tekur skýrt fram að „þessu vill Sósíalistaflokkurinn breyta; Sósíalistaflokkurinn er grasrótarsamtök.“

Gunnar Smári kemur inn á skipulag flokksins sem „er þannig að fámennur hópur forystufólks getur ekki beygt flokkinn undir vilja sinn. Grasrót flokksins gefur ekki frá sér mótun stefnunnar eða niðurröðun á framboðslista heldur er hvort tveggja unnið í slembivöldum hópum almenns flokksfólks. Skipulag flokksins er ekki þríhyrndur valdastrúktur, eins og annarra flokka, heldur hefur flokkurinn margar miðjur og ólíkar stjórnir, sem allar eru jafn settar og sækja jafnt umboð til Sósíalistaþings. Allir félagar hafa rétt á setu á Sósíalistaþingi og innan flokksins gilda reglur um hámarkssetu félaga í stjórnum. Sósíalistaflokkurinn hefur því varnir gegn klíkuvæðingu innbyggðar í skipulag sitt.“

- Auglýsing -

Skipulag Sósíalistaflokksins er byggt á reynslu annarra stjórnmálaflokka.

„Ef flokkar hafa ekki innbyggðar varnir gegn klíkumyndun verða þeir klíkuvæðingunni að bráð. Það sýnir sagan. Það á ekki aðeins við um stjórnmálaflokka heldur öll almannasamtök. Þau sem komast til valda nota völdin til að auka enn við eigin völd og til að verja þau. Þetta hefur verið kallað járnlögmál klíkuvæðingarinnar.“

Gunnar Smári segir að „Sósíalistaflokkurinn er ungur flokkur, enn á leikskólaaldri. Flokksfólk veit vel að skipulag flokksins og uppbygging er ekki fullmótuð. En þau eru meðvituð um að ef flokkurinn á að gagnast alþýðunni þarf hann að ná að laða til sín sem flesta félaga, virkja þá til starfa og verja flokkinn fyrir klíkumyndun,“ og bætir við:

- Auglýsing -

„Sósíalistaflokkurinn hefur ekki mótað þá umgjörð sem elítuflokkarnir hafa byggt í kringum sjálfan sig. Kjörnir fulltrúar flokksins ganga inn í ofurlaunakerfi sem elítustjórnmálafólk hefur smíðað kringum sjálft sig, flokkurinn fær úthlutað sömu aðstöðu og elítuflokkarnir hafa búið sér og hann fær sömu styrki og elítuflokkarnir hafa skammtað sér.“

Og þá mun Sósíalistaflokkurinn fara „að dæmi Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa og gefa inn í styrktarsjóð Vorstjörnunnar hluta af launum sínum svo það sem eftir situr sé á við miðlungs millistéttarlaun, ígildi launa yfirkennara eða iðnaðarmanns.“

Gunnar Smári færir í tal að „alþingi greiðir aðstoðarfólki þingflokka laun. Sósíalistar líta svo á að þingmenn flokksins verði hluti breiðrar alþýðuhreyfingar og að starf þeirra verði betra eftir því sem hreyfingin verður sterkari. Aðstoðarfólkið mun því starfa með hreyfingunni allri, ekki aðeins þingflokknum. Uppbygging hreyfingarinnar mun efla þingflokkinn. Þingflokkur án róta í breiðri alþýðufylkingu er einskis virði.“

Bætir við:

„Ríkið styrkir stjórnmálaflokka um háar upphæðir. Sósíalistar munu nota þetta fé til að efla hagsmunabaráttu hópa sem standa veikt fjárhagslega, byggja upp fjölmiðlun í samstarfi við Alþýðufélagið/Samstöðina, sem er vísir af róttækum fjölmiðli, og ýta með öðrum hætti undir baráttu alþýðunnar gegn óréttlæti og kúgun kapítalismans.“

Gunnar Smári segir einnig að Sósíalistar muni flytja þá fjármuni og aðstöðu sem „elítuflokkarnir“ hafi skammtað sjálfum sér út í hreyfingu alþýðunnar, „því að slíkt þjónar best markmiðum Sósíalistaflokksins. Flokkurinn mun ekki gera neitt gagn nema sem hluti slíkrar hreyfingar. Flokkur án djúpra og virkra tenginga út í hreyfingu alþýðufólks er einskis virði og í raun hindrun í vegi baráttunnar. Það á við um elítuflokkanna og þannig flokkur vill Sósíalistaflokkurinn ekki vera.“

Gunnar Smári segir að breyta verði launamálum þingmanna og annarra kjörinna þjóna almennings svo þau verði á við ágæt millistéttarlaun, og nefnir að Þannig hafi þessi laun verið fyrir fáeinum áratugum síðan:

„Sósíalistaflokkurinn vill lækka laun þingmanna. Á nýfrjálshyggjuárunum hækkuðu laun þingmanna mikið og var það réttlætt með því að hærri laun myndu lokka betra fólk á þing. Sú hefur ekki orðið raunin. Fólk sem sækist í stjórnmál vegna launanna á ekkert erindi inn á lýðræðisvettvanginn. Þingmenn ættu að vera með sambærileg laun og yfirkennarar og ráðherrar viðlíka og skólastjórar.“

Þá segir Gunnar Smári að „leggja þarf af það sem eftir lifir af upphafningu stjórnmálanna sem rekja má til konungsríkja miðalda. Stjórnmálafólk ætti ekki að kalla hvort annað háttvirt og enn síður hæstvirt. Það er hreint hlægilegt á þingi sem nýtur sáralítils traust meðal landsmanna. Leggja á af ráðherrabíla, einkabílstjóra og allt slíkt tildur og snobb; leggja á af styrki til stjórnmálaflokka. Þeir bæta ekki lýðræðið heldur veikja það; auka völd forystu flokkanna á kostnað grasrótar. Til að efla lýðræði á ríkið að styrkja og styðja við hagsmunabaráttu þeirra hópa sem standa verst og hafa minnst fjárráð. Þar liggur vandi lýðræðisins. Hin fátækari hafa of lítil völd. Og forysta stjórnmálaflokka tilheyrir ekki hinum fátæku og valdalausu.“

Hann nefnir einnig að „til að tryggja jafnræði á lýðræðisvettvangi á að banna fégjafir fyrirtækja og hagsmunasamtaka fjármagns- og fyrirtækjaeigenda til stjórnmálaflokka. Lýðræðið er vettvangur almennings – tæki hans til að vega upp á móti ógnarvaldi auðsins. Til að draga úr áhrifum fjármuna á kosningabaráttu ætti að banna kosningaáróður í auglýsingum ljósvakans,“ enda á auður „ekkert erindi í stjórnmál; það eru næg völd sem fylgja auðnum og hann á ekki að snerta stjórnmál almennings.“

Í lok samtalsins segir Gunnar Smári þetta:

Mynd / Haraldur Guðjónsson.

„Sósíalistar munu lækka laun kjörinna fulltrúa við fyrsta tækifæri og leggja af ofurstyrki elítuflokkanna við fyrsta tækifæri,“ og þá munu „Sósíalistar leggja af ráðherrabíla –  einkabílstjóra og allt slíkt snobb og tildur. Stjórnmálafólk eru þjónar en ekki herrar.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -