Þriðjudagur 19. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Sundmannakláði í Landmannalaugum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Umhverfisstofnun hefur fengið tilkynningar um að notendur náttúrulaugarinnar í Landmannalaugum hafi fengið útbrot vegna sundmannakláða.

 

Sundlirfur fuglablóðagða (Schistosomatidae) valda útbrotum á fólki sem nefnd eru sundmannakláði en fólk kemst í snertingu við lirfurnar þegar synt er eða vaðið í vatni þar sem lirfurnar eru til staðar. Umræddar lirfur munu vera í náttúrulauginni í Landmannalaugum.

Á vef Umhverfisstofnunar segir að kláðabólur myndast þegar ofnæmiskerfi líkamans hefur tekist að stöðva lirfurnar.

„Sýni menn ekki ofnæmisviðbrögð hefur lirfunni tekist að komast óáreittri inn í líkamann, en þar drepst hún fljótlega. Blóðögðurnar finnast í andfuglum eins og stokkönd og duggönd sem eiga til að dvelja á svæðinu í Landmannalaugum.“

Umhverfisstofnun hafði samráð við sóttvarnarlækni og byggist niðurstaða á greiningum frá Tilraunastöðinni á Keldum er fram kemur í grein á vef stofnunarinnar.

„Stofnunin í samstarfi við fagaðila vinnur að því að koma í veg fyrir að sundmannakláði berist áfram í náttúrulaugina í Landmannalaugum. Ekki hefur tekist að koma í veg fyrir það á þessu ári og þurfa því baðgestir að hafa það í huga að enn er möguleiki á að smitast af sundmannakláða,“ segir einnig í greininni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -