Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Þjóðarhöll íþrótta tilbúin 2025 – Uppbygging hafin

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ásmundur Einar Daðason, ráðherra íþróttamála skipaði starfshóp um uppbyggingu þjóðarleikvanga síðastliðin vetur. Í kjölfar undirritunar viljayfirlýsingar stjórnvalda og Reykjavíkurborgar 6. maí um nýja þjóðarhöll var skipuð framkvæmdanefnd um uppbygginguna.

Helgi Geirharðsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri hjá framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal. Ráðgert er að byggingaframkvæmdum verði lokið á árinu 2025.

Helgi Geirharðsson er nýr verkefnastjóri hjá framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal.

Hlutverk framkvæmdanefndar er að leiða faglega vinnu vegna allra þátta uppbyggingar mannvirkisins og skipulags því tengdu s.s. vegna hönnunar, útboða, tæknilegrar útfærslu, rekstrarforms og hvernig staðið verður að fjármögnun.

Einnig að fylgja eftir að nauðsynlegir verkþættir vegna uppbyggingar mannvirkis fyrir innanhússíþróttir í Laugardal séu framkvæmdir samkvæmt þeim reglum sem gilda um opinberar framkvæmdir. Er þá átt við frumathugun, áætlunargerð, verklega framkvæmd og skilamat. Hópnum er falið að útbúa tímasetta framkvæmdaáætlun vegna uppbyggingar mannvirkisins.

Framkvæmdanefndin vinnur sín verkefni í samráði við starfshóp um uppbyggingu þjóðarleikvanga og kallar til ráðgjafa eftir því sem við á. Hún gefur starfshópnum reglulegar upplýsingar um framgang verkefnisins auk þess að tryggja nauðsynlegt samráð við ráðgjafaráð skipað hagsmunaaðilum og öðrum notendum mannvirkisins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -