Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Þórólfur er mjög áhyggjufullur: „Streptókokkar eru að valda mun alvarlegri sjúkdómum núna en áður“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Við höfum ekki verið að sjá þetta áður, þetta er nýtt,“ sagði Þórólfur Guðnason, fyrrverandi sóttvarnarlæknir, í þættinum Þetta helst á RÚV.

Þátturinn fjallaði um streptókokkasýkingar er herjað hafa hér á landi undanfarna mánuði; þykja mun svæsnari en áður.

Kom fram að rúmlega sextíu sjúklingar hafi þurft innlögn á spítala síðustu mánuði; þrír látist af völdum streptókokka.

„Streptókokkar eru að valda mun alvarlegri sjúkdómum núna en áður, eins og blóðsýkingum, og þar sem þeir ráðast inn í vefi fólks, vöðva sem og lungu og valda alvarlegum sjúkdómum. Mér skilst að rúmlega 60 manns hafi verið lagðir inn vegna alvarlegra streptókokkasýkinga frá í nóvember, og þar af held ég að þrír hafi látist. Þetta er óvenjulegt landslag núna, er kallar á breytta nálgun á streptókokkasýkingar almennt,“ sagði Þórólfur í þættinum áðurnefnda.

Svo virðist sem bakterían hafi ekki stökkbreyst, en sýkingarnar eru engu að síður mun alvarlegri en þær sem áður hafa skotið upp kollinum.

„Þetta er það sem er kallað á ensku Flesh eating bacteria sem hefur alltaf komið upp af og til. Og þetta eru alvarlegu sýkingarnar sem eru að koma núna; ekki þessar hefðbundnu streptókokkasýkingar sem eru venjulega í gangi,“ sagði Þórólfur og nefndi einnig að þetta geti haft afar alvarlegar afleiðingar í för með sér, jafnvel þó fólk lifi þessa slæmu sýkingu af; nefndi einnig að til séu dæmi um að gera hafi þurft miklar aðgerðir á fólki til að fjarlægja vöðva og vefi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -