Laugardagur 27. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Undarleg reykjarlykt í Vesturbænum. „Hélt fyrst að ég væri eitthvað að trippa“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Óútskýrð reykjarlykt lá yfir Vesturbænum í gærkvöldi. Íbúar furða sig á því hvaðan lyktin komi.

„Veit einhver hvers vegna er svona mikil reykjarlykt við Hjarðarhaga?“ Spurði Haukur nokkur íbúi hverfisins í Facebook hópi Vesturbæjar í gærkvöldi.

„Líka á Hringbraut. Vorum að spá í hver væri með arinn í nágrenninu. En þetta virðist vera stærra svæði en svo að arinn geti verið sökudólgurinn,“ skrifar Sigríður.

Kona nokkur vill meina að reykjarlyktin hafi einnig verið í póstnúmeri 112. „Var að koma úr 112 og fór niður í 107. Fannst þetta meira og minna á báðum svæðum.“

„Hofsvalla líka hélt fyrst að ég væri eitthvað að trippa,“ skrifar einn.

Skúli skrifar: „Er líka á Hjarðarhaga og spyr sömu spurningar. Það var svipuð reykjarstemning man ég á föstudaginn í síðustu viku.“

- Auglýsing -

Annar bætir við að lyktin hafi einnig fundist á Víðimel og enn önnur fann reykjarlykt á Kaplaskjólsvegi.

Ljóst er að reykjarlyktin fannst ansi víða í Vesturbænum og mögulega víðar, en hvort afar öflugur arinn sé sökudólgurinn eða eitthvað annað er enn á huldu

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -