Miðvikudagur 27. mars, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Vill banna blóðmerahald: „Auðvitað mun Ísteka beita samböndum og fjármunum til að stöðva það bann“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ole Anton Bieltvedtver stofnandi og formaður Jarðarvina, samtaka um dýra- ,náttúru- og umhverfisvernd, ritar grein um blóðmerahald undir yfirskriftinni:

Á­form og yfir­lýsingar Ís­teka um dýra­vænt blóð­mera­hald standast ekki! 

Þar segir Ole meðal annars að „framkvæmdastjóri Ísteka birti grein á Vísi nú um helgina, þar sem hann reynir að sannfæra lesendur um, að Ísteka gæti vel að velferð dýranna, og, að blóðmeraiðja fyrirtækisins sé fagleg og dýravæn.

Arnþór Guðlaugsson er framkvæmdarstjóri Ísteka

Undirritaður hefur skrifað 7 greinar um þá óiðju, sem hann telur blóðmerahald vera, og birt þær í Morgunblaði, Fréttablaði og hér á Vísi síðustu þrjár vikur.“

Bætir við:

„Skal fyrst vísað til þessara greina, sem sýna, að áform og yfirlýsingar Ísteka um dýravænt blóðmerahald standast ekki.

- Auglýsing -

Jafnvel þó að vilji fyrirtækisins sé til staðar, sem ég efa ekki, enda gróði stórfelldur af þessari starfsemi, er dýravænt blóðmerahald óhugsandi og óframkvæmanlegt.

Mynd: Animal Welfare Foundation / Tierschutzbund Zürich

Hér skulu helztu rökin endurtekin, til að auðvelda lesendum skoðun málsins:

1. Blóðmerarnar eru ótamdar, hálfvillt eða alvillt dýr, sem eiga ekki samskipti við menn, nema, þegar þau eru neydd í blóðtöku í 2-3 mánuði á ári. Þær eru því allar varar um sig og fælnar, eru auk þess allar með lítil folöld, sem gerir þær ennþá varkárari og styggari.

- Auglýsing -

2. Það liggur í hlutarins eðli, að það er enginn vegur, að skilja svona ótamda hryssu frá folaldi, leiða hana inn í þröngan blóðtökubás, reyra hana þar niður og festa með slám og reipum og snarrífa svo höfuð upp á við og reyra það þar með hart strengdum reipum, helzt eins og í skrúfustykki, svo blóðtaka geti farið fram, í 15 langar mínútur, í góðu án þess að dýrið streitist eða berjist á móti, oftast með öllum kröftum, til að reyna að losa sig úr prísundinni og undan ofbeldinu, líka til að komast aftur tilfolaldsins. Fullyrðingar um, að þessi blóðtaka geti farið fram með friði og spekt, í góðu, innan ramma dýravelferðar, þannig, að dýrið vinni með blóðtökumönnum, stenzt ekki; er hrein fásinna!!

3. Líffræðilegrar velferðar dýrsins er heldur alls ekki gætt á fullnægjandi hátt:

  • A. Hryssurnar eru bæði fylfullar og með nýlega fæddu folaldi, eru sem sagt mjólkandi. Þessu fylgir mikið líkamlegt og andlegt álag fyrir hryssurnar, og bannar regluverk þýzku matvælastofnunarinnar, Bundesamt für Verbraucherschutz und Lebensmittelsicherheit, blóðtöku af hryssu, þó að hún sé aðeins fylfull, eða aðeins mjólkandi, en íslenzku blóðmerarnar eru hvorutveggja; fylfullar og mjólkandi. Þetta býður auðvitað upp á það, að hryssunum sé stórlega ofboðið, andlega og líkamlega.
  • B. Öll vísindi, sem fyrir liggja, gefa til kynna, að ekki sé æskilegt eða dýravænt, að taka meira en 10% af blóði hryssu, sem þá er í standi til þess, að blóðtaka fari fram, og það ekki oftar en á 30 daga fresti.  Þetta er líka ein af reglum þýzku matvæla-stofnunarinnar. Við höfum talið, skv. þeim gögnum, sem við höfum haft aðgang að, að blóðmagn í íslenzkri hryssu sé 35-37 lítrar. Skv. þessu mætti taka mest 3,5 lítra af íslenzkri hryssu, einu sinni í mánuði, ef velferðar hennar væri gætt.

Ole færir í tal að „Ísteka lætur hins vegar taka 5 lítra af íslenzkum blóðmerum, í einu, og það á 7 daga fresti, alls 8 sinnum, í 2-3 mánuði, haust hvert.

Miðað við öll þekkt vísindi og alla þekkta staðla, er hér auðvitað verið að misbjóða dýrunum með stórfelldum hætti, líka líffræðilega.“

Ole segir að Ísteka hafi stundað blóðtöku af íslenskum merum í tuttugu ár og misboðið þeim „skv. ofangreindu og haft af því milljarða gróða.“

Heldur áfram:

„Nú er mál að linni. Kæri lesandi, leggðu þitt af mörkum með því að undirrita lista um bann við blóðmerahaldi, þannig, að Alþingismenn komist ekki undan því að samþykkja bann, þegar málið kemur fyrir Alþingi.“

Hann er öruggur á því að „auðvitað munu alls kyns hagsmunaaðilar, með Ísteka í fararbroddi, auk blóðmerabænda og annarra, sem hagsmuni eiga, beita öllum sínum samböndum og fjármunum til að koma í veg fyrir bann.

Það er því brýnt, að almenningur, gott og dýravænt íslenzkt fólk, þið lesendur góðir, leggist öll með okkur á árarnar um það, að tryggja bann,“ segir Ole að lokum.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -