Föstudagur 29. mars, 2024
4.8 C
Reykjavik

„Vitskert veröld sem við búum í“ – Staðan versnar bara og versnar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Þetta er vitskert veröld sem við búum í,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR á facebook síðu sinni í morgun. Þar vekur hann athygli á því að leiguverð sé orðið hærra en lágmarkslaun.

Þar vísar hann í neðangreinda auglýsingu sem tekin af fasteignavef mbl.is. Þar er boðið upp á 3 herbergja íbúð til leigu á 375.000 kr. á mánuði, sem er töluvert yfir lægstu launatöxtum, sem voru fyrir skatt rúmar 367.000 kr., fyrir hækkanir síðustu kjarasamninga.

Bjarg Íbúðafélag er með sambærilega íbúð til leigu við Tangabryggju á 166.475 kr. og frá því dragast húsaleigubætur.

Gæti verið mynd af furniture og Texti þar sem stendur "mbl.is AFRENIAR MARS Synum samdagurs. LPAAR gufunesid.is 87 m² 3 1.3.2023 1/24 Tangabryggja 18 375.000 kr."

 

Hér má sjá færslu Ragnars í heild sinni:

- Auglýsing -
Staðan á húsnæðismarkaði. Meðfylgjandi mynd er tekin af fasteignavef mbl.is. Þar er boðið upp á 3 herbergja íbúð til leigu á 375.000 kr. á mánuð
i, sem er töluvert yfir lægstu launatöxtum, sem voru fyrir skatt rúmar 367.000 kr., fyrir hækkanir síðustu kjarasamninga.
Bjarg Íbúðafélag er með sambærilega íbúð til leigu við Tangabryggju á 166.475 kr. og frá því dragast húsaleigubætur.
Leigufélagið Alma hefur borið fyrir sig markaðinn þegar tugþúsunda hækkunum, umfram vísitölu, er hellt yfir viðskiptavini þeirra með reglulegu millibili og er viðbúið að þetta nýja viðmið markaðarins á Tangabryggju verði notað við næstu 12 mánaða endurskoðun þeirra þegar viðskiptavinir þeirra fá “boð” um endurnýjun á leigusamningi.
Við hjá Bjargi vorum að skila af okkur dýrustu blokk sem við höfum byggt en blokkin stendur við Maríugötu í Garðabæ. Ein af ástæðum þess að hún var dýrari í framkvæmd var að lofthæð þurfti að vera meiri, en svo spila aðrir þættir þar inn líka eins og hærri fjármagnskostnaður og hærri byggingarkostnaður. Það þýðir að leiguverðið á 3 herbergja íbúð við Maríugötu er það hæsta se
m við höfum þurft að setja á slíka íbúð í sögu Bjargs eða 190.000 kr. á mánuði.
Við erum með þinglýstan leigusamning frá blokkinni við hliðina en þar fór íbúð í leigu á 320.000 kr. fyrir hálfu ári síðan.
Við hjá Bjargi stefnum að því að vera komin með um 1.000 íbúðir á þessu ári, og það á aðeins 5 árum, en allar framkvæmdir hafa verið á kostnaðar og tímaáætlun sem er líklega einsdæmi í byggingarsögu Íslands.
Einnig munum við hefja framkvæmdir við fyrsta verkefni Blævar í þessum mánuði en það eru íbúðir sem VR fjármagnar og verða í boði fyrir félagsfólk VR. Verkefnið er sérstaklega sniðið fyrir fjárfestingar lífeyrissjóða.
Árum saman hefur stefnt í eina alvarlegustu húsnæðiskreppu síðari ára.
Árum saman höfum við reynt að koma á leigubremsu.
Árum saman höfum við bent á að helsti drifkraftur verðbólgu er framboðsskortur á húsnæði.
Árum saman höfum við reynt að fá lífeyrissjóði til að fjárfesta í uppbyggingu á húsnæðismarkaði.
Árum saman höfum við reynt að koma stjórnvöldum í skilning um þessa stöðu en einungis fengið starfshóp eftir starfshóp og nefnd eftir nefnd en engar aðgerðir eða efndir.
Staðan í dag er að húsnæðismarkaðurinn er botn frosinn. Framkvæmdir dragast saman og stefnir í algjört óefni. Hátt vaxtastig og aðgerðir Seðlabankans hafa þannig lokað á eftirspurnarhliðina, og framboðshliðin er að lokast líka.
Í meðan hefur ríkisstjórnin mestar áhyggjur af stöðunni á vinnumarkaði og hvernig helst sé hægt að beisla hann með lögum. Og hvernig kjarasamningar, en þar hækkuðu laun um 35.000 til 66.000 kr. á mánuði, séu nú helsta ógnin við stöðugleika.
Þetta er það eina sem þau hafa til málanna að leggja á meðan þinfararkaupið, sem er Kr. 1.345.582.- og hefur hækkað um 582.642 í krónum talið frá árinu 2016, mun að öllum líkindum hækka um að lágmarki 115.000 kr. við næstu endurskoðun í júlí ef við áætlum hver 12 mánaða launavísitala verði þá.
Fjármálaráðherra telur okkur aldrei hafa haft það betra á meðan bankarnir öskra eftir enn hærri vöxtum svo þeir geti gengið á eigið fé almennings sem myndast hefur í húsnæðum þeirra.
Staðan versnar bara og versnar.
Þetta er vitskert veröld sem við búum í.

 

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -