Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Tók yfir tíu ár að fullkomna hönnun stellsins

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

HAV er nýtt stell frá Royal Copenhagen, innblásið af hafinu, eins og nafnið gefur til kynna, og áferðin á því minnir á fiskroð.

Stellið er hannað í nánu samstarfi við Bjarke Ingels, einn þekktasta arkitekt Dana, Lars Holme Larsen iðnhönnuð og Jens Martin Skibsted, hönnuð og heimspeking, en saman mynda þeir hönnunarþríeykið KiBiSi.

Það tók teymið yfir tíu ár að fullkomna hönnun stellsins. Skírskotun í hafið hefur mátt finna í flestum vörum Royal Copenhagen í gegnum aldirnar, þá sér í lagi hvað varðar form og liti. HAV er tímalaus hönnun sem tengir saman arfleifð Royal Copenhagen og nútímann með áherslu á sjálfbærni ásamt því að vera hannað til þess að endast í margar kynslóðir.

Stellið verður fáanlegt í ágúst næstkomandi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -