Anna Kristjánsdóttir er ánægð með bifvélavirkjana á Tenerife.
Frægasti Tenerife-búinn, Anna Kristjánsdóttir skrifar afar vinsælar dagbókarfærslur á Facebook á hverjum degi og vita þeir sem þær lesa, hver Mjallhvít er. Anna, sem er þekkt fyrir sinn húmor, kallar hvíta bílinn sinn Mjallhvíti en það er ljóst á skrifum hennar að henni þykir afar vænt um bílinn.
Í dagbókarfærslu gærdagsins skrifaði Anna meðal annars um Mjallhvíti en hún fór með hana í skoðun til bifvélavirkja á eyjunni sólríku. „Í gærmorgun fór ég og sótti hana Mjallhvíti mína, nýskoðaða og sæta. Það mega bifvélavirkjarnir á Tenerife eiga, að þegar ég sótti hana var búið að breiða plast yfir bílstjórasætið, stýrið og pappa yfir gólfið bílstjóramegin, semsagt allt fyrsta flokks. Reyndar þurfti ég að byrja á því að fjarlægja þetta allt og tengja bíltölvuna við netið, en hún hafði verið aftengd svo unnt hefði verið að lesa af ástandi Mjallhvítar, en nettölvan er tengd í gegnum sama aðgang og bíltölvan.“
Ýmislegt þurfti að laga til að koma Mjallhvíti í gott stand en Anna er ánægð með verðið en hún borgaði um 79 þúsund krónur fyrir allt heila klabbið.