Laugardagur 27. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Atli Örvarsson tilnefndur til BAFTA: „Þú ótrúlegi skapari og listamaður“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Atli Örvarsson var í gær tilnefndur til BAFTA verðlaunanna fyrir frumsamda tónlist við leikið efni.

Akureyri.net segir frá því að kvikmyndatónskáldið og Akureyringurinn Atli Örvarsson hafi í gær verið tilnefndur til hinna virtu BAFTA verðlauna, fyrir tónlistina í þáttaröðinni Silo sem sýnd er á Apple TV.

BAFTA eru bresku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin, stundum kölluð bresku Óskarsverðlaunin. Í gær voru tilnefningarnar kynntar.

„Þetta er mikill heiður og mín fyrsta BAFTA tilnefning,“ sagði Atli í samtali við Akureyri.net. „Ég færði mig um set til London fyrir einu og hálfu ári síðan til að vinna við þessa seríu og því er sérstaklega ánægjulegt að uppskera þessa viðurkenningu.“

Þegar Atli hafði fengið tilnefninguna þakkaði hann fyrir sig á Instagram þar sem hann skrifaði: „Takk BAFTA!“ Aðalleikkona þáttanna, Rebecca Ferguson svaraði Atla að bragði: „Nei, þakka þér Atli!!!! Þú ótrúlegi skapari og listamaður.“

- Auglýsing -


Þáttaröðin, Silo er vísindaskáldskapur sem fjallar um tilraunir fólks til að lifa af neðanjarðar eftir að yfirboðið er orðið óbyggilegt en þættirnir hafa verið gríðarlega vinsælir og var á tímabili vinsælasta þáttasería sem sýnd var á streymisveitu, í heimi.

Næstu misserin verður Atli og fjölskylda hans með aðsetur í London en vinna við næstu seríu er að hefjast.

Í flokki Atla voru einnig tilnefnd: Adiescar Chase fyrir Heartstopper (See-Saw Films / Netflix), Blair Mowat fyrir Nolly (Quay Street Productions  / ITVS) og Natalie Holt fyrir Loki (Marvew Studios / Disney+).

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -