Söngkonan og hæfileikabúntið Svala Björgvinsdóttir deildi með fylgjendum sínum, á Instagram, árangri brúnkumeðferðar. Helst mætti halda að Svala, sem klæðist smekklegum appelsínugulum sundbol, sé ný komin frá sólarlöndum.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2024/02/svala_brunkumynd-171x300.jpg)
Árangurinn má teljast öfundsverður enda margur landinn hálfgegnsær nú í febrúarmánuði. Mælir Svala með vörum Marc Bane Iceland sem hún merkir og ritar: „Besta self tanið.“
Svala er drífandi og athafnasöm og því er forvitnilegt að fylgja Svölu á samfélagsmiðlum og sjá hvað á daga hennar drífur. Söngkonan vinnur nú að nýrri plötu og fagnaði á dögunum 47 ára afmæli sínu. Rúmlega 27 þúsund manns fylgja Svölu á Instagram.
Sjá meira:
Svala birti sæta afmælissjálfu: „Árinu eldri í dag, þakklát“