Fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, Dagur B. Eggertsson hreinsaði hugann við Heklu rætur með foreldrum sínum og hrossum í dag. Klæddist hann afmælisgjöf frá borgarfulltrúum Pírata.
Mikið hefur mætt á Degi B. Eggertssyni undanfarna daga eftir að María Sigrún Hilmarsdóttir fjallaði um lóðamál Reykjavíkurborar í Kastljósþætti síðastliðið mánudagskvöld. Dagur svaraði Maríu Sigrúnu með Í dag birti Dagur ljósmyndir og færslu á Facebook þar sem hann sagðist hafa farið með foreldrum sínum við Heklu rætur að sækja tvo hesta á hús. Gantast hann um eftirsjá að hafa ekki boðið sig fram til forseta, vegna ullarpeysunnar sem hann klæddist á myndunum en hana fékk Dagur í afmælisgjöf frá Pírötum í Reykjavík.
Hér má lesa færsluna:
„Fór austur með pabba og mömmu til að aðstoða við að sækja tvo hesta á hús – til viðbótar við þá sem fyrir eru. Yndislegt að hreinsa hugann við Heklu-rætur og ákveðin synd að hafa verið afhuga forsetaframboði því peysan sem Píratar í Reykjavík gáfu mér í fimmtugsgjöf slær allt út. Takk aftur fyrir mig og sérstaklega píratinn prjónandi, Rannveig Tenchi Ernudóttir!“