Ólafur Ragnar Grímsson birtist óvænt á ljósmynd á Instagram-reikningi eiginkonu sinnar, Dorrit Moussaieff í gær. Þar sést hann í hrókasamræðum við heimsfrægan leikara.
Dorrit, sem hefur ekki verið neitt sérstaklega dugleg að birta ljósmynd af eiginmanni sínum, Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrum forseta landsins, jafn vel þó hann sé ekki þekktur fyrir að vera feiminn við myndavélarnar. Í gær var þó bragarbót á en demantadrottningin birti ljósmynd af Ólafi í hrókasamræðum við eina stærstu stjörnu Hollywood og Vísindakirkjunnar, Tom nokkurn Cruise. Dorrit skrifaði við myndina: „Hvað eru þessir tveir leikarar að tala um?“ en það er góð spurning enda engu líkara en að Tom sé við það að gefa Ólafi spaðann.
Hér má sjá hina skemmtilegu ljósmynd:

Ljósmynd: Instagram-skjáskot