Föstudagur 26. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Edda minnist móður sinnar: „Ómetanlegt að eiga mömmu sem gefur svona óendanlega mikinn kærleika“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Edda Björgvinsdóttir minnist móður sinnar í nýrri Facebook-færslu.

Ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar, Edda Björgvinsdóttir minnist Margrétar Kristinsdóttur móður sinnar á Facebook í dag en hún hefði orðið 94 ára í dag en hún lést árið 2012.

Edda segist í færslunni hafa áttað sig á því á fullorðinsaldri hvað það er „ómetanlegt (og alls ekki sjálfgefið) að eiga mömmu sem gefur svona óendanlega mikinn kærleika – alltaf.“

Hér má lesa hin fallegu minningarorð í heild sinni:

„Engin er eins og hún mamma.💕 Afmælisbarn dagsins er elsku falleg mamma mín. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég var orðin fullorðin hvað það er ómetanlegt (og alls ekki sjálfgefið) að eiga mömmu sem gefur svona óendanlega mikinn kærleika – alltaf. Ég hélt satt að segja að allir foreldrar væru endalaust gjöfulir og styðjandi við öll börn og slíkur foreldrakærleikur yrði til um leið og von væri á litlu barni og væri síðan ótæmandi brunnur. En því miður er ekki svo og með árunum hef ég farið oftar og oftar á hnén og þakkað fyrir fjársjóðinn í mínu uppeldi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -