Edda Falak skemmtir sér konunglega í London ásamt kærastanum og stórum vinahópi. Eru þau stödd í höfuðborg Bretlands til að styðja við bakið á Gunnari Nelson sem mætir bandaríkjamanninum Bryan Barberena í hringnum í kvöld.

Ljósmynd: Instagram-skjáskot
Ásakanir Frosta Logasonar á hendur Eddu Falak virðast ekki bíta á henni, miðað við „story“ hjá henni á Instagram. Frosti kom fram í hlaðvarpsþætti sínum Harmageddon, með staðhæfingar um að Edda hefði logið því í fjölmiðla að hún hafi unnið í virtum fjárfestingabanka í Danmörku á árum áður. Í „Story“ hjá blaðakonunni má sjá hana með stórum vinahópi ásamt kærasta sínum, njóta lífsins í London. Þau hafa gert vel við sig í mat og drykk og eins og einn ræðuhaldari í hópnum sagði: „Við skulum njóta kvöldsins eins og það sé enginn morgundagurinn.“
Sjá einnig: Frosti Logason sakar Eddu Falak um lygar: „Hún hefur aldrei unnið í stórum fjárfestingabanka“

Ljósmynd: Instagram-sjáskot
Gunnar Nelson er við það að mæta Bryan Barberena og verður spennandi að sjá hvernig kappanum gengur en hann er að snúa aftur eftir talsvert hlé.

Ljósmynd: Instagram-skjáskot