Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Evert leitar lausna: „Við getum alveg látið fólk borða mat en ekki rusl og látið fólk hreyfa sig“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það getur ekki verið eðlilegt að meira en 70 prósent Íslendinga séu að taka lyf að staðaldri. Ég vil sjá þetta alveg öfugt. Það á að vera minnihlutinn sem er að taka lyf,’’ segir Evert Víglundsson, eigandi CrossFit Reykjavíkur, í nýjum hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar. Þar ræðir Evert um hin ýmsu mál sem snúa að hreyfingu og heilbrigði.

„Það eru engir peningar í því að gera fólk heilbrigt og það er hluti af vandanum. Við getum breytt þessu öllu, en það verður erfitt á meðan peningarnir eru í því að selja öll þessi lyf. Mörg af stærstu fyrirtækjum í heiminum eru lyfjafyrirtæki og það þarf ekki að kafa djúpt til að byrja að spurja spurninga. Þar sem eru svona miklir peningar er stutt í einhvers konar spillingu. Sagan um Oxycontin sem nú er búið að gera sjónvarpsseríu um er eitthvað sem líklega hefur gerst margoft í einhverri mynd. Allir stærstu lyfjarisarnir eru með einhvers konar dóma á bakinu fyrir að ljúga að fólki, sem eitt og sér ætti að fá okkur til að hugsa okkur um. Læknarnir okkar og heilbrigðisstarfsfólkið er frábært fólk, en það er eitthvað í kerfinu sjálfu sem er ónýtt,“ segir Evert en er hann sannfærður um að Ísland geti orðið heilbrigðasta land í heimi. Til þess að svo verði, verði allir að leggjast á eitt. Unga fólkið líka.

„Við sem samfélag þurfum að leggjast á eitt til að gera okkur öll heilbrigðari og ekki sjá það sem eðlilegan hlut að flestir séu að taka lyf, þó að auðvitað eigi þau rétt á sér. Ísland á að vera heilbrigðasta land í heimi og við sáum það vel í Covid faraldrinum að þegar við viljum, þá getum við öll gengið í takt. Fólk virðist geta farið eftir fyrirmælum, þannig að það er spurning hvort ekki sé komið að tilmælum og fyrirmælum um að hreyfa sig, borða hollan mat og hugsa um svefninn. Auðvitað yrði mjög hávær umræða ef við færum að banna sykur og fleira í þeim dúr. En ég tel að við getum alveg látið fólk borða mat en ekki rusl og látið fólk hreyfa sig. Við þurfum bara að finna leiðina til þess. Hvað myndi gerast ef við myndum til dæmis hafa þjóðarátak þar sem allir myndu ganga í takt í 30 daga til þess að vera besta útgáfan af sjálfu sér? Væri það ekki tilraun sem væri vert að prófa. Það er auðveldara að framkvæma hluti í hóp og þegar aðrir eru að gera sömu hluti.“

Evert segir að Covid hafi haft neikvæð áhrif á lífstíl margra og færri stundi líkamsrækt eftir heimsfaraldurinn.

„Ég sé það í CrossFit Reykjavík og veit að það er þannig hjá flestum sem ég hef talað við í þessum geira að hlutirnir hafa verið hægari eftir Covid. Það hafa almennt ekki eins margir verið að mæta í ræktina eftir Covid, enda er ekki nema ár síðan aðgerðir voru í fullum gangi. Við eigum örugglega enn eftir að sjá afleiðingarnar af því hvernig lífsstíll fólks hefur versnað enn meira eftir þetta tímabil,“ segir hann en þáttinn horfa á í heild sinni hér.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -