Laugardagur 27. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Fimm ára gamalt undrabarn slær í gegn í Bandaríkjunum – MYNDBAND

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Chrisyius Whitehead er sennilega frægasti fimm ára drengur heims um þessar mundir en hann sló heldur betur í gegn sjónvarpsþættinum America’s Got Talent í seinustu viku.

Hinn fimm ára gamli meistari sýndi hæfileika sem fáir fullorðnir búa yfir, hvað þá börn. Whitehead er nefnilega ótrúlega fær trymbill en hann hefur spilað á trommur síðan hann var eins árs gamall að eigin sögn. Í þættinum trommaði hann lagið Faith eftir Stevie Wonder og ætluðu áhorfendur og dómarar vart að trúa eigin augum.

Í þættinum var Whitehead spurður hvað hann myndi gera ef hann myndi sigra keppnina en í verðlaun er ein milljón bandaríkjadala. „Ég myndi deila peningnum með fátæku fólki og heimilislausu fólki og öllum í heiminum,“ sagði undrabarnið. Þegar hann var spurður hvað hann myndi kaupa fyrir afgangspeninginn eftir að hafa hjálpað heiminum svaraði Whitehead: „Ég myndi kaupa 200 poka af slími og leikföng.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -