- Auglýsing -
Ekki eru allir hrútar með horn en allir hrútar hafa pung. Hann hafa kindur hins vegar ekki.
Þau bráðfyndnu mistök voru gerð í frétt DV að knattspyrnumaðurinn Spencer Prior var sagður hafa þurft að borða „kindaeistu“ er hann var keyptur frá Manchester City árið 2001 til velska liðsins Cardiff City. Eins og flestir vita sem einhvern tíma hafa komið í sveitina, eru kindur ekki með eistu, eðli málsins samkvæmt.