Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Gísli Einarsson með uppistandssýningu á Söguloftinu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Uppistandssýningin “Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna) verður frumsýnd á Sögulofti Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi laugardaginn 14. Janúar.

Forsagan er sú að árið 1752 fengu vísindamennirnir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson styrk frá Danska ríkinu til að rannsaka jarðfræði Íslands, sögu, mannlíf og menningu. Síðan eru liðin mörg ár og margt breyst.

Eftirfarandi texti er úr frétttilkynningu um skemmtunina: Í sýningunni fer hinn víðförli Gísli Einarsson yfir rannsóknarniðurstöður þeirra Eggerts og Bjarna og uppfærir og leiðréttir eftir því sem við á. (Samt ekki síður þar sem það á ekki við!) Að baki þessari sýningu liggur gríðarleg vinna en það er þó þekkt í gegnum mannskynssöguna að þótt miklum tíma sé varið í ákveðin verkefni þá getur niðurstaðan samt verið ömurlega.

Gísli skoðar heiminn. Ljósmynd: Gunnhildur Lind Hansdóttir
Í rannsóknum Gísla nefnilega er kastað til höndum eins og mögulegt er og vinnubrögð í alla staði óvönduð. Iðulega er líka ómaklega vegið að einstaklingum, hópum og jafnvel heilu landshlutunum. Það skal þó tekið fram að markmiðið með sýningunni er alls ekki að hæðast að fólki og lítilsvirða  eða ofbjóða áhorfendum með dónaskap. Hinsvegar er svosem ekkert gert til að koma í veg fyrir að það geti gerst.
Höfundur er Gísli Einarsson og meðhöfundar þeir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson.
Fram koma í sýningunni: Gísli Einarsson og Ferðabók Eggerts og Bjarna.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Einarsson. Netfang: [email protected] Sími: 899 4098
Uppselt er á fyrstu sýningar en fleiri sýningar eru komnar í sölu á Tix.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -