Sjarmerandi 162 fermetra hæð stendur við Sólheima 26 á eftirsóttum stað í Laugardal. Fasteignasalan Lind er með eignina á skrá hjá sér.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2022/02/thumb-8.jpg)
Íbúðin er mikið endurnýjuð en eldhúsið var tekið í gegn árið 2021 auk gólfefna. Harðparket er á allri íbúðinni að frátalinni forstofu en þar eru terrazzo flísar.
Tvennar svalir eru á eigninni, annars vegar úr borðstofu sem snúa í suðvestur átt en hinar svalirnar snúa til austurs úr hjónaherbergi.
Vert er að taka fram að gardínur frá Hvítt og kastarabrautir fylgja með eigninni.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2022/02/thumb-10.jpg)
Litaval á innréttingum og gólfefni passar fallega saman en eru jarðlitir ríkjandi í gegnum alla íbúðina. Gólflistar og gluggar og setja svip á íbúðina en húsið er byggt árið 1960.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2022/02/thumb-9.jpg)
Lóðin er rúmir 700 fermetrar. Garðurinn hefur fengið gott viðhald og er snyrtilegur. Stutt er í alla helstu þjónustu og ótal gönguleiðir í næsta nágrenni. Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar frekari upplýsingar á vef fasteignasölunnar en verður eignin sýnd laugardaginn 19. febrúar næstkomandi.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2022/02/thumb-11.jpg)