Listakonan og leikmyndahönnuðurinn Sunneva Ása Weisshappel og kvikmyndaframleiðandinn Baltasar Kormákur eru nú stödd í Japan. Parið vinnur saman að gerð myndarinnar Snerting, sem er nýjasta mynd úr smiðju Baltasar. Virðist þau una sér vel þar í landi og aðdáun Sunnevu á sínum heittelskaða leynir sér ekki – en hér að neðan sést mynd af henni við störf sín og mæla hann út.

Snerting er tekin upp í þremur löndum; Íslandi, Englandi og að lokum í Japan. Er þetta því þriðji og jafntframt lokatökustaður myndarinnar. Handrit myndarinnar eru unnið upp úr samnefndu skáldverki Ólafs Jóhanns Ólafssonar og hlaut bók hans tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðulaunanna.

Fjölbreyttur hópur leikara tekur þátt í myndinni og má þar nefna söngstirnið Egil Ólafsson, Yoko Narahashi, Pálma Kormák og Koki. Kvikmyndin er framleidd af Baltasar og Agnesi Johansen hjá framleiðslufyrirtækinu RVK Studios.
Hér má skoða instagram reikning Sunnevu
Fréttin hefur verið uppfærð