Saga Garðarsdóttir er stödd í Mexíkó en var að fatta að hún mun missa af bolludeginum.
Grínistinn og leikkonan Saga Garðarsdóttir sló heldur betur í gegn í Áramótaskaupinu og hefur sjálfsagt sjaldan verið jafn vinsæl. Nýverið skrapp hún til Mexíkó í sólina en í færslu sem hún skrifaði á Twitter í dag segist hún hafa verið að uppgötva það að hún muni missa af sjálfum bolludeginum sem er á næsa leiti.
„Ég er i Mexico og var að fatta að ég missi af bolludeginum á Íslandi sem er bráðum. Já, það er sumt sem sól og mergjuð matarmenning annarra landa ræður bara ekki við – og það er bolludagurinn.“
Fóstbróðirinn Þorsteinn Guðmundsson skrifaði fyndna athugasemd við færslu Sögu: „Er ekki kötturinn sleginn úr bollunni í Mexíkó?“