Þriðjudagur 23. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Sjáðu myndina af glæsilegum Guðmundi Felix á leið á Bessastaði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eitt það fyrsta sem Guðmundur Felix Grétarsson, oft kallaður Handhafinn, gerði við komuna til Íslands var að skella sér í klippingu. Að því loknu var honum boðið til kvöldverðar á Bessastaði og af því tilefni birti hann þessa mynd:

Guðmundur Felix og Sylwia, glæsileg á leið á Bessastaði.

Guðmundur Felix Grétarsson er gangandi kraftaverk og af honum berast reglulega stórkostlegar fréttir. Eins og flestir líklegast vita voru græddir á Guðmund nýir handleggir þann 14. janúar síðastliðinn, eftir að hann missti þá báða í hræðilegu slysi árið 1998, þá 26 ára gamall.

Guðmundur Felix kom til Íslands í gær en þá hafði hann ekki komið til landsins í langan tíma. Nýju handleggir hans voru græddir á hann í janúar síðastliðnum og hefur Guðmundur verið í stífri endurhæfingu síðan. Við heimkomuna hafði hann þetta að segja:

„Ég hef það bara alveg stórfín en það er skrítið að vera kominn heim. Það er svolítil geðshræring núna að vera búinn að vera á spítala í ellefu mánuði samfellt og finnst ég allt í einu vera kominn út í lífið. Ég er að fara að hitta afastrákinn minn í fyrsta skipti núna. Hann fæddist bara fyrir mánuði síðan.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -