Við fjöruborðið í Hvalfirði stendur stórglæsilegt hús sem nú er komið á sölu. Eignin er 233 fermetrar og skiptist í 185,7 fermerta einbýlishús og 47,6 fermetra gestahús. Eignin er í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík og er útsýnið úr húsinu stórbrotið eins og sjá má á myndum.
Gólfsíðir gluggar
Nautshúð í andyrinu sem er sérstaklega fallegt
Gólfið er flotað og lakkað, kemur skemmtilega út.
Hér má sjá glitta í útsýnið
Sannkölluð paradís í Kjós
Eldhús með stórri Smeg Portofino eldavél með gashellum og rafmagnsbakarofni. Veggir í eldhúsi eru flísalagðir og kastarabraut yfir vinnuborði og vaski.
Notalegt skot í húsinu – Greinilega mikill fagurkeri sem býr hér
Svona flísar sér maður nú ekki víða.
Mikil náttúrufegurð
Óvanalegt að baðkarið sé í miðju baðherberginu, kemur virkilega vel út!