Laugardagur 27. apríl, 2024
8.8 C
Reykjavik

Stjörnurithöfundur fagnar afmælinu: „Ég er eins árs í dag!“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Verðlauna- og stjörnurithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir heldur upp á afmæli – en þó ekki þetta árlega hefðbundna afmæli kennt við fæðingu hvers og eins.
Nei.
Hún er edrú í dag – og eitt ár er liðið síðan Bergrún lagði bokkuna á hilluna:
„Ég er eins árs í dag! Að baki er heilt ár af því að upplifa lífið án deyfingar. Tólf mánuðir þar sem ég leyfði mér að fara alla leið niður en fékk líka að komast alla leið upp.
Það er ekki auðvelt að fara í fyrsta sinn í gegnum tilfinningar án þess að styðjast við hækju í vökvaformi. Ég tíndi upp úr öllum skúffum minningar og áföll, sorteraði og fór í gegnum það sem ég hef burðast með, valdi hverju skyldi halda og hverju sleppa takinu af.
Ég hef unnið alls kyns verðlaun í gegnum árin en það að hætta að drekka og lifa í bata er stærsti sigurinn og það sem ég er hvað stoltust af.
Verkefninu er ekki lokið, ég tekst á við einn dag í einu og þigg þá hjálp sem er í boði. Alkahólismi er miklu flóknari sjúkdómur en svo að kona leggi bara frá sér glasið, en það er ómetanlegt að vita að enginn þarf að standa í þessu einn með sjálfum sér.
Edrúsamfélagið er stórt og fullt af stuðningi, kærleik og visku. Ef einhver er forvitin/nn/ð og vill byrja að kynna sér áfengislausan lífsstíl þá eru til alls kyns góðar bækur og hlaðvörp, öpp og fleira, en fyrir mig virkaði best að tala við fólk sem hefur upplifað það sama og ég. Þannig gat ég tekið fyrsta skrefið, og svo það næsta og þarnæsta.
Ferðalagið snýst minnst um áfengi, og mest um djúpa sjálfsvinnu og það að læra að elska sjálfa mig, allsgáð, með öllum mínum eiginleikum.
Skrefin hafa ekki alltaf verið auðveld, en þau eru stór og í rétta átt.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -