Svala Björgvinsdóttir söngkona og Kristján Einar Sigurbjörnsson áhrifavaldur eru hætt saman, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Parið, sem hafði verið saman frá því í ágúst 2020 var trúlofað, en hefur Svala nú tekið niður hringinn. Birti hún myndir á Instagram reikningi sínum í gær þar sem hún sýnir frá nýrri íbúð sem hún hyggst flytja í, með litla hundinum sínum, Sósu.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2022/04/Screenshot_20220428-233626_Instagram-823x1024.jpg)
Enginn hringur var sjáanlegur á fingri Svölu í gær þar sem hún var stödd á söngæfingu með mörgum þekktustu söngfuglum landsins. Kristján hefur verið mikið í fréttum nýverið en var hann handtekinn á Spáni í lok mars fyrir slagsmál. Atvikið átti sér stað fyrir utan skemmtistað og myndband af handtökunni fór sem eldur um sinu um samfélags- og fréttamiðla. Það eru bjartir tímar framundan hjá Svölu sem skrifaði undir nýjan plötusamning í gær við enga aðra en Öldu Music.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2022/04/svala-806x1024.jpg)