Miðvikudagur 27. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Svakalegur árangur Sigurðar – 36 kíló farin: „Líkaminn var að gefast upp“ – Sjáið myndirnar!

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sig­urður Helgi Pálma­son, safnvörður og þáttastjórnandi, náði af sér 36 kílóum og deilir ráðum sínum með netverjum. Í ársbyrjun 2018 ákvað hann að taka sig á en á þeim tíma var hann uppgefinn á bæði líkama og sál. Þegar hann steig á vigt­ina þenn­an janú­armorg­un fékk hann nett áfall þegar hann sá að hann var orðinn 116,2 kíló.

Sigurður Helgi, oftast kallaður Siggi Pálma, birti færslu á Facebook sem vakti mikla athygli og segir þar frá því hvernig honum tókst þetta.

„Mér hefur tekist að ná af mér rúm 36 kíló og er nú kominn undir 80 kíló.

1. janúar árið 2018 vaknaði ég uppgefinn á líkama og sál. Ég fann að ekkert við þetta sjálfskapaða ástand mitt væri eðlilegt. Líkami minn var hreinlega að gefast upp á ofáti. Ég var þrútinn, bólginn og aumur og það versta, mjög leiður.

Ég hafði ekki þorað að stíga á vigtina í marga mánuði og fékk nett áfall þegar ég sá að ég var orðinn 116.2 kíló. Á því augnabliki ákvað ég að nú væri nóg komið, þessu yrði ég að breyta. Ég fór að lesa mig til um þær leiðir sem eru í boði og vildi finna eitthvað sem ég taldi að ég gæti unnið með, engar skyndilausnir, og helst ekki að taka neinn mat út. Bæta, laga og framkvæma. Á endanum ákvað ég að byrja að fasta.

Fyrir ykkur sem vilja skoða þá aðferð þá eru griðarlega miklar upplýsingar um þessa aðferð á netinu. Hjá mér gengur þetta út á að borða ekkert fyrir kl 12 og ekki eftir kl 19. Ég minnkaði skammta, tók út allt gos og reyndi að taka út allan viðbættan sykur – bætti við vítamínum og lýsi eftir minni. Það sem hefur hjálpað mér að halda fókus er að stíga á vigtina á hverjum degi. Það geri ég til að minna mig á verkefni dagsins og að ég sjái hvernig líkami minn bregst við mat og aðstæðum.

- Auglýsing -
Á Sigurði hefur orðið svakaleg breyting á þessum tíma.

Og nú ætla ég að sýna ykkur fyrir og eftir mynd. 

Mig langar að árrétta að ég trúi svo sannarlega að við höfum öll rétt á því að lifa okkar lífi eftir því hvað við teljum vera okkur fyrir bestu. Ég kaus þessa breytingu af því að mér leið illa og ég vildi fjárfesta í sjálfum mér.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -