Vítalía Lazareva stefnir á að opna matarheimasíðu ef marka má Instagramsögu dagsins hjá henni.
Vítalía hefur verið gríðarlega áberandi í íslenskum fjölmiðlum undanfarið ár vegna frásagna hennar af brotum nokkurra eldri manna á henni en óþarfi er að fara nánar út í þá sálma. Þau sem fylgjast með Vítalíu á Instagram vita að hún er ansi lipur í eldhúsinu, hvort sem hún matreiðir eða bakar. Á Instagramreikningi hennar má til að mynda sjá ótrúlega girnilegar bountykúlur, gullfallegt súrdeigsbrauð og safaríka kjötrétti svo fáeitt sé nefnt.
Í „story“ hjá henni í dag var hún að svara aðsendum spurningum og skilaboðum en í einu þeirra stóð: „Plís opna matarblogg.“ Vítalía svaraði: „Ég er að byrja að vinna í heimasíðu sem ég vona að ég geti sett í loftið fyrr en seinna.“
Lesendur sem ætla sér að kíkja á Instagramreikning Vítalíu eru varaðir við að skoða hann svangir.