Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Þegar ekkert er að: „Ég hef upplifað stjórnleysi og logið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ég er miðaldra. Með iðnmenntun í grunninn og talsverða starfsreynslu. Alltaf unnið, aldrei langa daga, en alltaf unnið. Ég hef aldrei leigt íbúð, svona kaupari.

Ég er gagnkynhneigður, giftur góðri konu og saman eigum við góða dóttir.

Bý í húsi sem er ekki yfirveðsett. Á grasflöt og sólpall. Við eigum líka kött, eða einna heldur það býr læða í stofunni hjá okkur. Hún hefur búið hjá okkur í fimm ár.

Veit ekki hvort hún myndi halda því áfram ef ég gæfi henni ekki að borða. Hún myndi örugglega bara fara, hún er samt mjög löt og ég veit ekki hvað hún heitir.

Ég vinn með börnum eins og er, kenni þeim smíði. Þau elska það, bíða í röðum fyrir utan stofuna hjá mér fyrir tímann.

Ég er ekki með yfirdrátt og legg meira að segja fyrir. Ég slæ grasið berfættur og er nýlega komin með blæti fyrir moltugerð. Ég monta mig yfir moltunni minni og sýni gestum og gangandi inn í hana.

- Auglýsing -

Síðasta sumar ræktaði ég um tvö hundruð THC-fríar kannabisplöntur og ég drekk afraksturinn á hverju kvöldi. Mér finnst það æðislegt og segi gestum og gangandi frá því.

Ég horfi á netflix, mér finnst það „nice“. Um daginn horfði ég á heila seríu um skákkonu á þremur dögum. Svo sagði ég fólki frá því.

Ég er meðalmaður, en hef ekki alltaf verið það. Ég hef upplifað stjórnleysi og logið. Ég hef verið með yfirdrátt og verið ábyrgðarlaus. Ég hef brugðist skyldum mínum og komið mér og öðrum í vandræði.

- Auglýsing -

En í dag er eins og ég hafi náð að koma mér á annan stað. Það er eins og það sé ekkert að. Það er bara þögn og ég leita að óuppgerðu, einhverju veseni og ég finn það ekki. Það er þögn og kötturinn sefur. Hún sefur reyndar mjög mikið, svo það er kannski ekki marktækt. Hún væri eflaust sofandi í ringulreið. Nema kannski ef hún fengi ekki mat.

Eigið þið góðan dag, meðbræður og -systur.

Munið að hlusta eftir þögninni milli einda.

Gunnar Dan Wiium

Þessi aðsenda grein birtist í glænýju Mannlífsblaði sem lesa má hér.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -